Hæ ég heiti Unnur Hrönn.
Ég vissi ekki alltaf að mig langaði að verða ljósmyndari. Ég ólst upp að elska að taka myndir. Ég var mjög týnd varðandi hvað ég vildi verða en ákvað svo að skella mér í nám við grafíska miðlun í tækniskólanum. Í grunn náminu fór ég í ljósmyndaráfanga og þegar það kom að því að velja braut snérist hugur minn og ég skellti mér í ljósmyndun. Sem ég útskrifaðist frá árið 2022 þá ólétt af mínu fyrsta barni.
Ég byrjaði námið á að elska að mynda fugla og náttúru. Í náminu er farið yfir alla þætti ljósmyndunar og þróaðist áhugi minn að fjölskyldu, bumbu og ungbarnamyndum. Einnig finnst mér mjög gaman að mynda auglýsingar og still life myndir.
Verkin mín og áhugi